Ađalvalmynd

Tónlist

Auglýsing

Teljari

Drengir

Hópar

Cliff Calvin veit hvađ hann syngurSveinn Sigurdsson

Fékk sendan áhugaverðan og fræðandi póst...

Ég veit að þið hafið öll heyrt eða lesið um þessi fræði áður, en ég hef
ekki séð neinn útskýra þetta eins vel og hinn alvísa Cliff Calvin
Staupasteini.
Cliff Calvin var að útskýra Buffala-kenninguna fyrir vini sínum Norm og það
gekk svona fyrir sig:
"Sjáðu nú til Norm, þetta virkar svona....
Buffalahjörð getur aðeins farið jafn hratt og hægasti buffalinn í
hjörðinni.
Og þegar veitt er úr hjörðinni eru það hinir hægustu og veikustu aftast í
hjörðinni sem eru drepnir fyrst.
Þetta náttúrulega val er mjög gott fyrir hjörðina í heild sinni því að með
reglulegum drápum á veikustu og hægustu einstaklingunum batnar heilsufar
hjarðarinnar og hraði hennar.

Á sama hátt má segja að mannsheilinn geti aðeins unnið eins hratt og
hægustu heilasellurnar leyfa.
Eins og við öll vitum þá drepur alkohól heilasellur en eðlilega drepur það
hægustu og veikustu sellurnar fyrst.
Á þennan hátt veldur regluleg inntaka áfengis því að veikari sellurnar
drepast og þar með því að heilinn verður hraðvirkari og skilvirkari.
Þetta er ástæðan fyrir því að maður verður svona klár eftir nokkra bjóra!"

Tengd þessari sögu er önnur
Eins og allir vita þá var meðalaldur íslendinga mjög lengi um það bil 35 ár
eða eiginlega frá 950 til 1900. Á sama tíma var innflutningur á tóbaki mjög
lítill eða nokkrir tugir kílóa á ári og þeir sem höfðu hærri meðalaldur
voru hástéttarmenn sem reyktu allt það sem var flutt inn til landsins. Sé
litið til þróunnar á innflutning tóbaks þá byrjar hann að vaxa upp úr
aldamótunum 1900, og það er mjög nákvæm fylgni milli kúrfunnar á aukningu
innflutnings tóbaks og hækkun meðalaldurs íslendinga. Báðar kúrfurnar
nákvæmlega jafnbrattar og meðaldur hækkað úr 35 árum í um 75 ár. Það er svo
upp úr 1980 sem vöxtur á innflutningi tóbaks minnkar og kúrfan verur
flatari og viti menn hæknun meðalaldurs hætti einnig að vaxa jafnhratt og
hefur síðan þá einungis hækkað úr 75 árum í 78 ár.

Semsagt ef drukkið er rösklega og reykt með þá drepur þú samkvæmt lögmálum
Darvins (Survival of the fittest) slöppustu sellurnar, maður finnur það
greinilega að morgni dags á eftir þar sem góðu sellurnar fá nánast
víðáttubrjálæði og þeysast um í kollinum að við lausn óleystra vandamála

Úff ekki gaman ađ lenda í ţessuSveinn Sigurdsson

Rómantískur Valentínusardagur...heheheSveinn Sigurdsson

Í gær var rómantíkin í loftinu, ég og Henning ákváðum að skella okkur á útgáfutónleika með hljómsveitinni Hjaltalín... heheheeh
Þetta var svona frekar sérstakt, þar byrjaði hljómsveitin Borko sem átti alveg ágæta spretti.. svo næst á svið kom hún Ólöf Arnalds sem mætti þarna bara með kassagítarinn sinn, og stóð sig alveg ágætlega en okkur fannst hún samt engan veginn passa þarna inn, enda var bara fólk á spjallinu á meðan hún tók sitt sett...
En svo komu Hjaltalín á svið og þeir eru náttúrlega talsvert mikið að stæla arcade fire en það er í góðu lagi, fyrst við fáum ekki arcade fire til landsins strax þá er fínt að hafa svipað band hérna sem maður getur séð..
það var margt sem vakti athygli okkar Hennings þarna, td þá voru svona 95% af öllum karlmönnum þarna inni með gleraugu með svartri umgjörð, við sáum mikið eftir því að hafa ekki skellt okkur í hagkaup og keypt okkur ein þannig, en svo var líka að við þekktum ekki EINA manneskju á tónleikunum, og það hefur held eg bara aldrei komið fyrir áður svona svo ég muni eftir að minnsta kosti.. en svo sátum við þarna á næst fremsta bekk og ljósmyndarar fyrir framan okkur og þeir gerðu í því að taka myndir af hver öðrum, ef einn stóð upp og fór að sviðinu þá tóku 2 myndir af honum á meðan, en samt svona í laumi... mig langar að giska á að þarna sé á ferðinni samkynhneigðu blaðaljósmyndara grúbba... en okkur fannst þetta mjög gaman að fylgjast með þessu, ja´það þarf ekki mikið til þess að gleðja okkur, svo var skellt sér á Nonnabita og kíkt aðeins á krúsina fyrir lokun... En prýðilegt kvöld og fínustu sérstöku tónleikar...

Vantar ţig ný föt?Sveinn Sigurdsson

Photobucket

ef lífiđ vćri handbolti...Sveinn Sigurdsson

jæja núna er kominn enn einn hress mánudagur,  þessa helgina gerði ég nú bara ekki neitt merkilegt af mér.. mest bara letilíf, sem er alveg ágætt stundum.. fylgdist reyndar aðeins með handboltanum og ég bara skil ekki þennan týpíska masókisma í íslendingum, í fyrsta lagi búum við í landi þar sem við vælum alltaf yfir veðrinu, það er alveg sama hvernig veður er við vælum það er bara staðreynd, svo erum við alltaf að væla yfir því hvað allt er dýrt hérna sem er nú reyndar skiljanlegt, dýrasta land í heimi, en jæja við gerum ekki neitt í því.. En svo komum við að blessuðum handboltanum, sko ekki nóg með það að allir íslendingar búast við fyrsta sætinu í hvert skipti sem landsliðið fer frá landinu, en innst inni vitum við öll að þarna er bara sjálfspyntingarhvötin komin, við viljum ekkert að liðið vinni, við viljum tap þannig að við getum vælt yfir því, eða jafnvel slegist eins og var á krúsinni á fimmtudaginn... en jæja hérna er ég með eina hugmynd sem satt best að segja að ég hefði alveg vel þegið í gær, sko það er að þegar þeir sem stýra útsendingu frá þessum blessuðu leikjum sjá að leikurinn er ónýtur og að þarna muni verða stórt tap og íslenska stoltið muni algjörlega fara þarna og valda þunglyndi hjá heilli þjóð í nokkra daga... væri þá ekki ráð að skella bara af stað einum gömlum stikluþætti með honum Ómari Ragnarssyni, svona bara til þess að stimpla inn þetta þjóðlega hjá okkur... og gleyma þessari íþrótt bara, þessir gaurar geta alveg eins farið bara að vinna venjulega vinnu eins og við hin, og ef þeim gengur líka illa í þeim vinnum þá þurfum við að minnsta kosti ekki að fylgjast með því í sjónvarpi.

bloggidí bloggidíSveinn Sigurdsson

gleðilegt nýtt ár og jólin og við skulum hafa gleðilega páska hérna líka ef ég held áfram að vera svona duglegur að blogga...
Það er svo sem ekkert merkilegt að frétta hjá mér, bara lífið yndislegt og ég er reyndar ekki frá því að ég sé bara orðinn ennþá fallegri en árið 2007, alveg magnað var viss um að það væri bara ekki hægt...
En völvan hans Svenna segir þetta um árið 2008
Þetta eru svona þær upplýsingar sem ég fann í völvunni minni..
hvað ætlið þið annars að gera á þessu ári?

Vegir liggja til allra átta..Sveinn Sigurdsson

jæja best að fara að láta vita af sér, síðustu vikur hafa bara verið alveg mjög busy í vinnu og svoleiðis en það getur alveg líka bara verið mjög skemmtilegt.
Svo reyndar er ég farinn að fá innilokunarkennd hérna á Íslandi vegna þess að mér finnst bara að allir sem ég tala við séu að fara að eignast barn og ég held það sé bara ekki pláss fyrir okkur öll hérna. En jæja ég var að eignast lítinn frænda klukkan 19:33 á laugardaginn 18 merkur 55 cm.. en það var hún Ingibjörg frænka með sinn 3. gaur.
En jæja svona í tilefni af því að það eru allir í kringum mig að eignast börn, þá er ég með svona lista af setningum sem ég mæli með að strákarnir segi við óléttu greyin sín svona til þess að koma af stað samtölum, þetta er nú listi á enskri tungu en ég nenni nú ekki að eyða tíma í þýðingar handa ykkur.
  • "Not to imply anything, but I don't think the kid weighs forty pounds."
  • "Y'know, looking at her, you'd never guess that Pamela Lee had a baby!"
  • "I sure hope your thighs aren't gonna stay that flabby forever!"
  • "Well, couldn't they induce labor? The 25th is the Super Bowl."
  • "Damn if you ain't about five pounds away from a surprise visit from that Richard Simmons fella."
  • "Fred at the office passed a stone the size of a pea. Boy, that's gotta hurt."
  • "Whoa! For a minute there, I thought I woke up next to Willard Scott!"
  • "I'm jealous! Why can't men experience the joy of childbirth?"
  • "Are your ankles supposed to look like that?"
  • "Get your *own* ice cream, Buddha!"
  • "Geez, you're awfully puffy looking today."
  • "Got milk?"
  • "Maybe we should name the baby after my secretary, Tawney."
  • "Man! That rose tattoo on your hip is the size of Madagascar!"
  • "Retaining water? Yeah, like the Hoover Dam retains water."
  • "You don't have the guts to pull the trigger, Lardass."

  • en jæja svo um helgina skellti ég mér á jólahlaðborð á Fjörukránni Hafnarfirði og þetta var bara alveg mjög skemmtilegt kvöld, fórum aðeins á kaffi Aróma eftir og þar var hljómsveit að spila sem var með félagsfælnivandamál, eða programmið of mikið planað hjá sér.. því við vorum ca 10 þarna inni og það var ekki séns að fá óskalag hjá þeim eða neitt, þannig að við fórum bara frekar á Dominos og kíktum á Jólalandið í Hafnarfirði...
    En já lítil sem engin þynnka í gær og bara þessi fíni afslöppunardagur fyrir jólavertíðina.

    The SecretSveinn Sigurdsson

    Jæja fyrst að það eru allir hættir að lesa síðuna þá er ég loksins aftur farinn að treysta mér í það að blogga þetta var bara orðið of mikið áreiti að ég bara varð að hætta þessu..

     

    En jæja málefni vikunnar er The Secret, í síðustu viku hringir í mig ungur drengur sem maður heyrði að brosið og gleðin skein úr hjarta hans, jú þetta var hinn merkilegi maður Halldór Magnússon aka Dóri grænmeti..

    Hann segir mér frá því að núna væru breyttir tímar og sól skyni í heiði.. og byrjaði að segja mér frá því hversu mögnuð þessi mynd væri og ég yrði bara gjörsamlega að sjá hana.. Ég fór nú ekkert að hlaupa neitt að horfa á hana þó svo að ég sæi hversu mikil viðbrögð hún hafði haft á unga drenginn.

    Svo mæti ég til hans á föstudaginn í matarboð og drengurinn stoppaði ekki allt kvöldið, ég var farinn að skynja ætlunarverk hans, það var greinilega ekki af góðu einu sem drengurinn hafði boðið okkur þarna til kvöldverðar.

    Ég átta mig á því að þetta er sama aðferð og trúflokkar nota til þess að smala til sín nýjum meðlimum, þarna ætlaði Halldór sér að koma okkur með sér í það að stofna cult hóp.. Mér tekst með lymsku minni að aðvara fólkið sem var með mér og tekst að fylla Halldór þannig að hann myndi ekki taka eins mikið eftir því þegar við myndum hverfa á braut.

     

    En jæja núna er komin önnur vika og ég ákveð nú að kíkja á þessa umtöluðu mynd, og viti menn, núna erum ég og Halldór búnir að stofna cult og erum meira að segja komnir með yoga kennara með okkur í lið, við erum komnir með nokkrar hugmyndir um hvernig við getum náð heimsyfirráðum og lokkað alla peninga heimsins í okkar vasa, þið munuð fara að verða vör við okkur fljótlega, sjónvarpsþættir og margt fleira.

     

    Let the secret be with you.

    Kv Svenni

    Mentos og Carlsberg...Sveinn Sigurdsson

    Hver hefur ekki séð myndbönd á netinu þar sem er verið að skella Mentos í coke flöskur og sjá þær springa.. alltaf hef ég nú haldið að þetta væri bara svona kolsýran sem hefur þessi áhrif en það greinilega skiptir máli hvaða drykkur þetta er..
    Sjáum til dæmis þetta myndband með mentos og Carlsberg.. ekki hefði ég trúað að áhrifin væru svona mögnuð
    Carlsberg and Mentos

    Íslenskar konur eru sko alls engar gungurSveinn Sigurdsson

    Three men were sitting together bragging about how they had given their new wives duties.
     
     The first man had married a Woman from Colorado and had told her that she was going to do the dishes and house cleaning. It took a couple days, but on the third day he came home to a clean house and dishes washed and put away.
     
     The second man had married a woman from Nebraska He had given his wife orders that she was to do all the cleaning, dishes, and the cooking.  The first day he didn't see any results, but the next day he saw it was better. By the third day, he saw his house was clean, the dishes were done, and there was a huge dinner on the table.
     
     The third man had married a girl from Iceland. He told her that her duties were to keep the house cleaned, dishes washed, lawn mowed, laundry washed and hot meals on the table for every meal. He said  the  first day he didn't see anything, the second day he didn't see anything, but by the third day some of the swelling had gone down and he could see a little out of his left eye, enough to fix himself a bite to eat and load the dishwasher.

    Síđa 1 af 12

    Humor

    Stúlkur

    Tenglasíđur